Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Opinberun Davíðs

Maðurinn er með mikilmennskubrjálæði...hvaða heilvita maður mun kjósa hann ef hann snýr aftur í stjórnmál....held að hann sé aðeins að ofmeta persónulegt fylgi sitt.

Eina góða við þessa frétt er að hann er búin að opinbera sig og nú vitum við hvers vegna Geir þorir ekki að hrófla við honum...óttast að Davíð kljúfi flokkinn.

Þannig hefur Davíð getað ráðskast með ríkisstjórnina og stjórnað því sem hann hefur viljað stjórna og það besta er að Samfylkingin dansar með og skýrir undirlægjuháttinn með því að það sé verið í miðjum björgunarleiðangri !

Björgunarleiðangri, hverju er verið að bjarga ?, ekki heimilunum í landinu svo mikið er víst með þetta vaxtastig og núverandi gengi íslensku krónunar !

Ef Geir hefði bein í nefinu þá myndi hann reka Davíð og leyfa honum að kljúfa flokkinn.  Þannig gætu kjósendur algerlega sniðgengið Davíð og hans skósveina í nýjum flokki...flokki sem yrði aldrei annað en áhrifalaus örflokkur.


mbl.is Davíð: „Þá mun ég snúa aftur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Sigurjón Vídalín Guðmundsson

Höfundur

Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Áhugamaður um betra og réttlátara samfélag á Íslandi.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband